Við

Auglýsing

Flokkar

Leit

Stuðningsmaður #94

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Svar við getrauninni

15. febrúar 2007 klukkan 14:58
Maðurinn er einn af mínum uppáhaldsleikurum, enginn annar en Boromir úr Lord of The Rings - Sean Bean. Hann er fæddur árið 1959 í Sheffield í Englandi og hefur leikið í myndum eins og:

Lord of the Rings
Equilibrium
The Island
Troy

The Hitcher (endurgerð þeirrar stórkostlegu myndar sem áður skartaði hollenska glaumgosanum Rutger Hauer - mikið blóð þar á ferð)
Flightplan (hvað get ég sagt, hreint út sagt ömurleg mynd! - Reyndar Sean karlinn kom vel út úr sínu hlutverki eins og svo oft áður)

Sean Bean
Sean Bean, nýkominn úr Herrafatadeild LÍ.

Að þessu sinni tóku 12 manns þátt í getrauninni og margir þeirra sendu svör eftir allar vísbendingarnar. Ég reyndar tók eftir því sjálfur þegar ég var búinn að klippa myndina til að Sean Bean er með mjög líka höku og hörkutólið Mickey Rourke - enda komu nokkrar slíkar ágiskanir. Dæmi um aðsend svör:

Valgeir Guðjónsson
Sting
George Clooney
Johnny Cash
David Beckham

Steve Coppell (knattpyrnustjóri Reading) - mjög athyglisverð ágiskun.
Phil Collins (aftur?)
Jóhannes Long (það eru þrír slíkir á Íslandi, á hvern var verið að giska?)

Það er þó alltaf gaman þegar þáttakan er mikil og maður þarf að ráða starfsfólk til að flokka svörin - það er greinilegt að fólki leiðist mjög svo í vinnunni. Þegar fjórða og síðasta vísbendingin birtist hafði enginn komið með rétt svar - en loksins þegar hártoppurinn birtist þá er eins og bjöllur hafi hringt. Réttum svörum ringdi hreinlega inn og munaði aðeins mínútu á fyrsta og öðru sæti. Málið er reyndar þannig að þeir sem svöruðu eftir 4. vísbendingu fá allir jafnmarga PHG punkta eða 1.500 og ekki skipti máli hver var fyrstur, heldur aðeins hverjir voru fyrstu þrír.

1. Yngvi Halldórsson (1.500 PHG punktar)
2. Þórey Þorgeirsdóttir (1.500 PHG punktar)
3. Albert Leó Haagensen (1.500 PHG punktar)


Breiðhyltingur kominn á blað, alveg helmagnað - Berti kemur sterkur inn á PHG listann og stekkur beint í 16.sætið. Yngvi Halldórsson hjá Herrafatadeild LÍ færist í 3ja sætið og Þórey í Snæland Vídeó festir sig í sessi sem getrauna-meistara PHG.

ATH: Það hefur verið gerð nafnabreyting hjá einu liðana á Corporate hluta PHG listans. KB Vídeó heitir núna Kaupþing Vídeó en allt annað er óbreytt held ég.

Næsta getraun er ekki væntanleg fyrr en í þarnæstu viku þannig að þið getið hvílt lúnar sálir þangað til.

-Long

Hver er maðurinn?

14. febrúar 2007 klukkan 09:10

4ja og síðasta vísbendingin - hver er maðurinn á myndinni?

Til að setja smá fjör í lokasprettinn þá vildi ég tilkynna að enginn hefur giskað á réttan mann, þannig að það er fullt af PHG punktum í boði.

Síðasta vísbendingin

Svör sendist á siggilong@gmail.com fyrir miðnætti í kvöld.

-Long

3ja vísbending!

12. febrúar 2007 klukkan 21:33
Svarfrestur rennur út á miðnætti á miðvikudaginn (afsakið með fyrri fréttir, mistök). Fjórða vísbending kemur inn annað kvöld.

3ja vísbending

Svör sendist sem fyrr á siggilong@gmail.com .

-Long

2. vísbending

10. febrúar 2007 klukkan 23:08
Vegna tæknilegra örðuleika var ekki mögulegt að setja aðra vísendingu inn í gær né í dag þannig að svarfresturinn hefur verið lengdur til miðnættis nk. þriðjudag.

2.vísbending:

2.vísbending

-Long

Getraun vikunnar/mánaðarins/ársins ?

07. febrúar 2007 klukkan 19:26

Við skulum byrja þetta aftur í rólegheitunum. Ég varla nenni að hafa þetta vikulegt en við skulum sjá til hversu miklu stuði maður verður í.

Hér fyrir neðan er fyrsti hlutinn úr mynd:

Getraunin

Myndin mun birtast í 4 hlutum á næstu dögum - miðvikudagur, föstudagur, sunnudagur, mánudagur.

Spurt er: Hver er maðurinn á myndinni? Svör skulu sendast á siggilong@gmail.com fyrir miðnætti nk. mánudag. Hver þátttakandi má svara einu sinni fyrir hverja vísbendingu.

Verðlaun í boði:

1. vísbending : 8.000 PHG punktar
2. vísbending : 4.000 PHG punktar
3. vísbending : 2.000 PHG punktar
4. vísbending : 1.000 PHG punktar

Þeir þrír fyrstu með rétt svar fá stig aðrir ekki - góða skemmtun!

-Long

Drekinn!

04. desember 2006 klukkan 15:31
Jæja, þá kom að því - það er búið að reka umsjónarmann getraunarinnar sökum lélegrar þátttöku undanfarið. Verið er að leita að nýjum umsjónarmanni hér í Danmörku en það gæti tekið nokkurn tíma, það er a.m.k. talið að nýr umsjónarmaður muni ekki taka við fyrr en um miðjan janúar á næsta ári. Eigendur síðunnar hafa samt sem áður tekið við starfinu til að ganga frá lausum endum og því þarf að birta svörin og verðlaunahafa úr síðustu getraun.

Drekinn!

Getraunina má finna hér

Svörin í lagaröð:

1. I thought you were on my side - Cock Robin
2. It's no good - Depeche mode
3. I ran - A flock of seagulls
4. The hardest part - Coldplay
5. Don't bring me down - ELO
6. Intuition - Jewel
7. Don't phunk with my heart - Black Eyed Peas
8. Aerodynamic - Daft Punk

Talið er að umsjónarmaður hafi numið allan tölvupóstinn á brott með sér þegar hann var drekinn en þegar reynt var að endurheimta hann úr PHG netkerfinu þá fundust aðeins tvö aðsend svör við þessari getraun. Umsjónarmaðurinn verður beðinn um að skila stolnum tölvugögnum hið fyrsta og reynt verður að höfða til samvisku hans.

Þar sem aðeins fundust tvö svör þá eru víst aðeins tveir verðlaunahafar. Þórey starfsmaður Snæland Vídeó var með 13 stig af 16 mögulegum sem hlýtur að teljast mjög gott þar sem hún er í langefsta sæti og fær að launum 8.000 PHG punkta. Yngvi Halldórsson starfsmaður í bindadeild, herrafatadeildar LÍ (stöðuhækkun?) var með 8 stig af 16 mögulegum og fær fyrir vikið 4.000 PHG punkta og er mjög öruggur í 2.sætið.

Myndbirting:



Sjáum hvaða áhrif þetta hefur á PHG punktalistann góða. Þórey stekkur í efsta sætið og verður þar þangað til nýr umsjónarmaður hefur verið ráðinn  og Yngvi festir sig í sessi í 4.sætinu.

Hvað höfum við öll lært? Að það borgar sig að vera með - tak skal du have, hej hej.

-Long

Getraun vikunnar (Music Quiz)

25. nóvember 2006 klukkan 17:50
Jæja góðir lesendur, ég veit að skrifaði að getraunin myndi ekki koma inn á mánudaginn nk. - eeeen, nú er smá tilraun í gangi. Að þessu sinni mun ekki skipta máli hversu fljótir þátttakendur eru að svara getrauninni heldur munu gæði svaranna koma til með að skipta máli.

Eins og tvisvar áður þá þarf að spila hljóðskrá sem er hægt að sækja hér - og spurt er um titil og flytjanda. Alls eru þetta 8 lög (síðasta lagið er spilað í heild sinni) og því 16 stig í pottinum.



Ef tveir þátttakendur verða með nákvæmlega jafn mörg stig munu svörin fara í gegnum gæðamat til að greina á milli sigurvegara. Ef það verður ennþá jafnt, þá mun verða einhverskonar tæ-breiker til að greina á milli.

Verðlaun:

1. 8.000 PHG punktar
2. 4.000 PHG punktar
3. 2.000 PHG punktar

Bónus: Fyrir fullkomin svör verða veittir auka 2.000 PHG punktar.

Svör sendist á netfangið siggilong@gmail.com - fyrir miðnætti á fimmtudaginn nk.

Ef þið skoðið nú PHG punktalistann þá er nú boðið upp á nýjung sem að vonandi mun hópa þátttakendur meira saman.

-Long

Svörin

23. nóvember 2006 klukkan 22:30

Þetta endaði betur en á horfðist - alls bárust 8 svör að þessu sinni en í fyrsta skiptið í sögunni er enginn með fullt hús! Og hvað um það? Það er vel hægt að vinna þessa getraun án þess að vera með allt fullkomið og búinn að vera að stemma allt af hundrað sinnum með Google.


Á bloggsíðum sumra þátttakenda má sjá að uppgjöf og þreyta endurspeglast í skrifum þeirra, líkega vegna gríðarlegs andlega álags sem getraunin veldur. Einnig hef ég fengið tölvupósta frá starfsmannastjórum tveggja stórra fyrirtækja á Íslandi þar sem ég er vinsamlegast beðinn um að slaufa þessari getraun endanlega - satt? Óákveðinn

Þátttakendur eru hvattir til að leita sér aðstoðar hjá sálfræðingi til að ná sér niður og svo vinda sér aftur í getrauna-gallann.

Rétt svör:

1. Tom Cruise - leikari
2. Arna Torfadóttir - húsfrú á PHG 9 og gift yfirlongaranum
3. Jennifer Lopez - leik- og söngkona
4. Robbie Williams - söngvari
5. Don Cheadle - leikari
6. Martin Scorcese - kvikmyndaleikstjóri
7. Jim Furyk - atvinnumaður í golfi (USA) - mikið í fjölmiðlum undanfarna daga

Eitthvað hefur þessi númer 4 vafist fyrir fólki (Robbie Williams) - helmingurinn af svarendum hélt að þetta væri sjálfur yfirlongarinn á sínum yngri árum. Erum við þá svona líkir? Einhverjir hafa velt þessu fyrir sér áður... - margir héldu reyndar líka að þetta væri af Demi Moore, það kemur ekki eins vel út fyrir mig - ekkert meira um það.

Sigurvegarinn að þessu sinni er enginn annar en undirlongarinn (ef það er einhver sem er yfir, þá er alltaf einhver annar sem er undir!) - Lárus Long, starfsmaður hjá KB Vídeó við Hlemm. Hann Lárus var með 12 stig af 14 mögulegum sem og Jón Þorgils(Torfa)son, námsmaður í Danmörku og Yngvi Halldórsson, starfsmaður herrafatadeildar LÍ við Laugaveg. Svörin voru svosem jafngóð en þar sem Lárus svaraði fyrstur þá fær hann fyrsta sætið fyrir vikið; þeir klikkuðu allir á nr. 4 .Nokkrir aðrir voru nálægt því að komast á pall en það vantaði örlítið upp á - kemur næst!

Að hugsa sér það að Yngvi hafi svarað getrauninni 4 tímum fyrir "deadline" á miðnætti í gær og samt komist á pall! Mjög gott...

1. Lárus Long - 8.000 PHG punktar (þar með kominn í 1. sætið á PHG punktalistanum)
2. Jón Þorgilsson - 4.000 PHG punktar
3. Yngvi Halldórsson - 2.000 PHG punktar

Svör bárust að venju frá dyggum lesendum síðunnar en hvað varð um sjoppuna Skalla við Reykjavíkurveg? Er nokkuð búið að loka henni? Ég frétti að það hefði verið einhver fræðsludagur (a.k.a. fyllerí) sl. föstudag þegar getraunin var sett inn og svo þynnka daginn eftir en hvað um það. Hvað er betra í þynnkunni en að leysa getraunir? Mikil vonbrigði þar á bæ og vona ég fái betri þátttöku þaðan þegar næsta getraun kemur inn á síðuna - það mun vera fyrir hádegi á mánudaginn nk. þannig að þið getið farið að hita upp.

Að venju er myndbirting af sigurvegara getraunarinnar. Það var eitthvað erfitt að útvega rétta mynd en þegar ég leitaði að "Lárus Long" á Google var þetta mynd nr. þrjú - ég vona að þetta sé nóg. Annars þá er hægt að senda myndir á siggilong@gmail.com fyrir myndbirtingu, annars er engin ábyrgð tekin á því hvort myndir séu af viðkomandi.


Lárus Long í dulargervi?

Varðandi bónusspurninguna sem engin gat: Arna Torfadóttir - hún er ekki heimsfræg og íslensk, annars hefði ég veitt 1.000 PHG punkta aðeins fyrir að giska á rétta persónu.

Kærufrestur er til miðnættis annað kvöld - viltu kæra? : siggilong@gmail.com

-Long

Svör óskast!

21. nóvember 2006 klukkan 19:22

Ungur karlmaður búsettur í Danmörku óskar eftir svörum við getraun sem hann og maki hans settu inn sl. föstudag. Svörin eiga að samanstanda af nöfnum á misjafnlega þekktu fólki sem birtist á myndum hér fyrir neðan. Svörin mega ekki vera fleiri en 7 talsins og svo var líka boðið upp á bónussvör svo hægt væri að fá fleiri punkta. Góð laun í boði fyrir rétt svör og fullum trúnaði er heitið.

Long

Getraun vikunnar

17. nóvember 2006 klukkan 16:00

Eins og lesendum var lofað þá er getraunin komin á síðuna. Að þessu sinni er hún í erfiðari kantinum en þó að sjálfsögðu ekki það sem getraunahöfundar töldu óleysanleg.

Hér fyrir neðan er mynd af 7 misjafnlega þekktum einstaklingum - 14 stig í potttinum, hver er maðurinn/konan og fyrir hvað er viðkomandi þekktur?

(á sumum myndunum er viðfangsefnið talsvert yngra en það er í dag Hlæjandi).

Verðlaun í boði:

1. 8.000 PHG punktar.
2. 4.000 PHG punktar.
3. 2.000 PHG punktar.

Bónus: Fyrir að ná 14 stigum eru 1.000 PHG punktar í boði og fyrir að tilgreina hver af einstaklingunum á myndunum er ólíkastur hinum og af hverju eru einnig 1.000 PHG punktar í boði - semsagt andskoti nóg af punktum.

Svör sendist á netfangið siggilong@gmail.com fyrir miðnætti á miðvikudaginn nk.

1.


2.


3.


4.


5.


6.


7.


Góða skemmtun!

Long