Við

Auglýsing

Flokkar

Leit

Stuðningsmaður #94

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Stofan = done

31. maí 2006 klukkan 03:50
Búin að pakka stofunni niður eða því sem fer í gáminn. Mjög fínt að vera byrjaður á þessu. Sjónvarpsherbergið er næst.

Bóluplast og opið hús

30. maí 2006 klukkan 01:06
Við Stella fórum í leiðangur í hádeginu í dag að kaupa bóluplast. Merkilegt nokk virðist bóluplastið vera uppselt í bænum. Ég fór á tvo staði og var  búin að hringja í tvo til viðbótar. Hvað er það? Jæja, fékk svo að fá smá lánað í vinnunni. Byrja því að pakka á eftir. Verður gott að vera byrjaður og enn betra að vera búinn.

Var svo með opið hús áðan. Bjóst nú við að það kæmu engvir en svo bara komu þrír og ég bara nokkuð sátt við það. Það er náttulega ómögulegt að segja hvernig fer en mér fannst allavega seinni tveir vera áhugasamir. Verður spennandi að sjá hvað gerist.


Undirbúningur

27. maí 2006 klukkan 03:11

Hringdi á nokkra staði í dag að athuga með bylgjupappa og bóluplast. Ætla að byrja pakka eftir helgi svo þá er víst vissara að vera með svona við hendina. Sagði mér líka einhver að kaupa svona ungbarnasvampa til að setja á milli diska og svoleiðis. Það er víst vissara að pakka þessu vel niður. Þarf líka að kaupa fleiri kassa, á eitthvað síðan við fluttum síðast til að byrja með.

Verð svo með opið hús hérna í Arnarhrauninu á mánudaginn. Vona að það komi nú einhverjir og kíki á höllina. Annars ótrúlegt hvað fjölmiðlarnir hafa mikil áhrif því markaðurinn er ótrúlega rólegur. Reyndar kannski tíminn líka. Þetta kemur.

Var að setja á sölu sófann okkar, borðstofuborðið og stofuborðið. Endilega hafðu samband ef þig vantar eitthvað af þessu eða eitthvað af því sem ég minntist á síðast.



 

Danmörk kallar

24. maí 2006 klukkan 01:15

Siggi er farinn út í síðustu löngu USA ferðina svo við mæðgur erum tvær í kotinu. Það á eftir að vera nóg að gera hjá okkur á næstunni. Ég er að fara út til Parísar eftir tvær vikur og svo tekur við að pakka niður í gáminn. Frétti hjá Stellu um daginn að gámurinn fer 15. júní sem er nú bara eftir um 3 vikur. Ég á því sennilega eftir að hafa nóg að gera þegar ég kem heim frá París, gæti verið að ég byrji eitthvað áður til að flýta fyrir. Annars er nú ekkert svo mikið sem við tökum með okkur en þetta er lúmskt samt. Við erum allavega með borðstofuborð, sófa, stofuborð, 28" sjónvarp,  hillur og fleira til sölu ef ykkur vantar eitthvað og auðvitað 1 stk. íbúð líka.