Við

Auglýsing

Flokkar

Leit

Stuðningsmaður #94

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Vunnum!

31. ágúst 2006 klukkan 18:47

Kynningarnar á Introduction Week Project klárðuðust núna um kl. 14:00 í ITU og hópur 5 bar sigur úr bítum - en það vill svo skemmtilega til að ég tilheyri einmitt þeim hópi.

Verkefnið var byggt á hugmynd frá mér og útfært af mér og Dario (ítalinn), aðrir komu því miður ekki að þessu - líklega vegna áhugaleysis Hissa. Þetta verkfefni gilti ekki til einkunnar heldur átti þetta meira að vera til gamans til að fá fólk til að kynnast betur. Við áttum að útfæra hugmynd af tölvukerfi sem tengdist skólanum að einhverjum hluta og í verðlaun var kampavínsflaska. Við fengum 13 stig af 15 mögulegum og fengum mikið hrós frá dómurunum fyrir útfærslu og einstaklega góða hugmynd sem gæti mögulega virkað in real life.

Hugbúnaðurinn sem við ætluðum að smíða átti að leyfa nemendum að viðhalda tónlistarprófíl á heimasíðu skólans - og að teknu tilliti til tónlistaráhuga nemenda sem eru inn í barnum í hvert skipti er forrit sem útbýr playlista einu sinni á klukkutíma. Einnig fá nemendur tækifæri til að gefa uppáhaldslagið sitt upp á heimasíðunni og einu sinni á klukkutíma verður eitthvað uppáhaldslag spilað. Þarna þurftum við að gefa upp ástæður og notkun hugbúnaðarins og teikna upp ýmsa ferla - t.d. hvernig kerfið veit hvaða nemendur eru inni á barnum í hvert skipti. Svo var auðvitað fullt af öðru dóti sem við þurftum að tilgreina og hvernig við myndum útfæra þetta tæknilega. Verkefnin hjá hinum hópunum voru líka mjög skemmtileg og skemmtilega kynnt en flest þeirra voru það steikt að það væri aldrei hægt að útfæra þau í raunveruleikanum.

Kannski fæ ég leyfi til að setja glærushowið á netið en við Dario erum að spá í að fá einkaleyfi fyrir þessu - Hlæjandi

Í matinn í kvöld ætla ég að fara með flösku af Tópasvodka og sjá hvernig samnemendur mínir fíla það - einnig mun ég og Dario opna kampavínið og fagna sætum sigri.

Nokkrar myndir af skólanum

31. ágúst 2006 klukkan 13:27
Tók nokkrar myndir á símann inni í skólanum í gær:

Séð yfir borðtennisborðið

Séð úr einni lyftunni

Tölvan magnaða

Tölvan magnaða og kaffibrúsinn

Séð frá skrifborðinu

Sit núna í skólanum og er að undirbúa verkefni sem við eigum að skila á þriðjudaginn, mjög mikið stuð. Á eftir er kynningin á Introduction Week Project með öllum nýju nemendunum í SDT og svo kvöldmatur og eitthvað partý Svalur


Sá sem er fyrstur að skrifa athugasemd við þessa grein fær 10.000 PHG punkta að launum - sá er nr 2. fær 5.000 og sá sem er nr. 3 fær 2.500. Sá sem skrifar bestu athugasemdina (dómnefnd ákveður úrslitin) fær 5.000 PHG punkta að launum.

Núverandi punktastaða:

Jóhannes Long / a.k.a. pabbi : 10.000 PHG punktar

SL

ITU.dk

30. ágúst 2006 klukkan 13:03
Jæja loksins smá umfjöllun um skólann.

Ég byrjaði fimmtudaginn í síðustu viku í 2ja tíma kennslustund um netkerfið þarna og hvernig ætti að nota alla hluti eins og heimasvæðið, FTP, tölvupóst og allt það. Frekar basic hlutir en nú veit maður allavega hvað má og hvað má ekki. T.d. má ekki hala niður öðru en skólatengdu efni...við skulum sjá til með það. Ég átti samtal við eldri nemanda þarna í gær og hann sagði að hann hefði verið að sækja fullt af drasli í gegnum tíðina og enginn kvartað sem eru mjög góðar fréttir.

Annars síðan PHG netkerfið var sett upp þá hefur það verið að hala niður 24/7 af alls kyns efni - þó aðallega bíómyndum og sjónvarpsþáttum. Nýlegar myndir eru t.d. Capote, Lucky Number Slevin, The Family Stone, DaVinci Code o.s.frv. Einnig höfum við verið að fylgjast með nýju seríunni af Prison Break og núna eru komnir 2 þættir og serían lofar góðu um framhaldið.  Það er bara spurning um hvað 3ja serían verði? Þeir að liggja á strönd í Mexíkó að sötra kokteila eftir að hafa sloppið yfir landamærin? Held að það gangi ekki upp, vonandi slútta þeir þessu með trompi í lok þessarar seríu.

Á föstudeginum í síðustu viku voru nýir nemendur boðnir velkomnir af kanslaranum eftir morgunmat saman. Morgunmaturinn var reyndar svolítið vandræðalegur þar sem það voru ekki margir sem þekktust þarna og smá feimni í gangi. Eftir ræðuna þá var haldið í kennslustofu þar sem þeir sem eru á SDT línunni komu saman (Software development and technology), það eru ca. 45 manns og þar af eru 4 Íslendingar með mér (þrír strákar og ein stelpa).  Eftir stutta kynningu frá aðalkennaranum var okkur skipt í hópa þar sem við eigum að vinna verkefni og skila á morgun. Það smá segja að minn hópur samanstendur af allra þjóða kvikindum - íslendingur, ítali, íraki, tyrki og kínverji - góð blanda? Reyndar er það ég og ítalinn sem höfum unnið mest í verkefninu og ætlar kínverjinn og ég að kynna það. Vonandi gengur það vel því verðlaunin eru eitthvað tengt barnum þarna, måske en øl?  
Barinn þarna heitir Scrollbar og er rosa flottur - þar er fuzzball borð og einnig borðtennisborð. Ég hef reyndar ekki enn látið ljós mitt skína en vonandi kemur að því. Sá sem er yfir Partý-nefndinni í skólanum sem sér um barinn var að stæra sig af þvi að þeir væru með yfir 40 tegundir af bjór þarna sem er mjög gott. Verðin á bjórnum eru heldur ekki galin því hægt er að fá stóran Tuborg á 15 DKK.

Fyrsti kúrsinn sem ég fór í sl. mánudag (OOP - Object oriented programming) er ekki að gera sig. Eftir að hafa skoðað þetta betur þá er þarna krafist reynslu og kunnáttu í hlutbundinni forritun sem ég hef ekki, þannig að eftir að hafa rætt við námsráðgjafa þá var mér bent á að taka verkefnakúrs fyrir byrjendur í hb-forritun. Það þýðir hreinlega það að ég tek 15 eininga kúrs sem er grunnur í hlutbundinni forritun og stórt lokaverkefni og próf. Þar sem OOP er 7.5 einingar þá er ég kominn með 7.5 einingum of mikið á þessari önn og verið er að skoða hvort ég þurfi að láta af gagnagrunnsfræðunum líka - vonandi ekki þar sem sá kúrs lofar mjög góðu.

Jæja nóg um skólann í bili - við erum að koma til Íslands næstu helgi til að fara í brúðkaup hjá Óla H. og Sigrúnu. Þetta verður stutt heimsókn en vonandi þá nær maður að hitta flesta. Annars er lífið að komast í rútínu hérna á PHG, Halla Rakel er í leikskólanum allan daginn og gengur bara vel, Arna er byrjuð að vinna mestallan daginn og ég í skólanum.

SL 

Stiklað á stóru

29. ágúst 2006 klukkan 20:30

Pantaði loksins gardínur fyrir gluggana hjá okkur í dag. Fengum þær á 25% lægra verði en við höfðum gert ráð fyrir svo það var bara kátt í höllinni. Gerum ráð fyrir þeim um næstu mánaðarmót og þá verður væntanlega enn kátara í höllinni.

Rútínan svona hægt og rólega að komast á. Siggi farinn að fara í skólann sinn og er núna búin að vera í gær og í dag frá ca. 12-18. Gæti reyndar verið að hann verði lengur í kvöld en það fer eitthvað eftir því hvort hann skiptir um kúrs. Hann er eitthvað að spá í það þar sem eitt námskeiðið sem hann er skráður í núna er víst frekar massívt - veit ekki hvernig það gekk en hann kemur semsagt annað hvort eftir ca. 30 mínútur eða 210 mínútur. Halla Rakel er hjá Védís Öglu að leika svo hér er tómlegt og afslappað.

Á sunnudaginn var afmælisveisla hjá Andreu Ýr sem varð 7 ára. Íbúar PGH 7 og 9 fjölmenntu á svæðið og var mikil spenna í HRL og hinum krökkunum þrátt fyrir að þau hittist og leiki allan daginn. Halla Rakel réð sér varla fyrir kæti allan daginn og var svo sofnuð fyrir allar aldir það kvöldið. Þetta var mjög gaman og góðar veitingar, mmm... maður fór alveg veltandi heim til sín.

Bryndís sem var að vinna með mér í Actavis átti strák í gær, sinn 3. strák - rík hjón þar á ferð. Til hamingju Bryndís, Helgi, Breki og Elías.

Spatúlur leggja land undir fót í fyrramálið. Robbie þær eru að koma til þín, passaðu þær fyrir mig. Góða ferð skvísur og munið að skála fyrir okkur hinum sem heima sitjum. Við heimtum svo ferðasögu og fullt af myndum.

Nokkrar nýjar myndir á www.hallarakel.barnaland.is


Stuð

29. ágúst 2006 klukkan 11:35
Bloggstuðið hefur eitthvað látið á sér kræla  þannig að þetta vídeó verður að duga í bili.

http://www.metacafe.com/watch/179978/zidane_vs_materazzi_the_movie/

SL

Halla Rakel

27. ágúst 2006 klukkan 00:42
- Þegar ég náði í HRL á leikskólann á föstudaginn var ég aðeins að spyrjast fyrir hvernig gengi svona dags daglega. Birthe sem er ein fóstran (ég held allavega að það sé skrifað svona) sagði að það gengi bara nokkuð vel nema að hún reyndi stundum að stjórna (dominera eins og hún orðaði það) Védís Öglu og Tómasi og þegar þau væru ekki til í það þá yrði hún eitthvað leið eða "ked" eins og hú nsagði og lítil í sér. Siggi Stefáns var fljótur að bæta við að svona væri mamman svolítið líka, já - like mother like daughter. Ég á þá allavega eitthvað í barninu. Ég hef nú aðeins reynt að tala við HRL um þetta að það verði allir að fá á ákveða hvað á að gera og enginn einn eigi að ráða.

- Hún er ekki alveg komin með á hreint hvað fóstrurnar heita á leikskólanum svo hún kallar þær eftir litum "þessi bláa", "þessi svarta". Ég var ekki alveg að skilja hver væri hvað fyrst en held að Jetta sé þessi bláa og Sara nýja fóstran er þessi svarta. Veit ekki hvaða litur Birthe er ennþá.

- Hún talar voða mikið um þjófa og þegar við erum að fara eitthvað út spyr hún stöðugt hvort pabbi hafi ekki læst svo að bófarnir komist ekki inn til okkar. Veit ekki hvaðan hún hefur þetta.

- Síðan við komum hefur auðvitað verið borðað töluvert af ís en ekki af venjulegum ís heldur skyrís. Þetta er svona skyr svipað og sms-skyrið á Íslandi sem settar eru spítur í og svo inn í frysti. Þetta þykir krökkunum algjört æði og hefur slegið Sun Lolly ísinn út (hugmynd fyrir Íslendingana). Frosin vínber eru líka ofarlega á vinsældarlistanum svo það er óhætt að segja áð hér sé það bara hollustan í fyrirrúmi.

Sól og sumar eða Rigning og eldingar

27. ágúst 2006 klukkan 00:33

Veðrið var alveg æðislegt í dag svo við ákváðum að skella okkur á hjólin. Morguninn fór í hjólaferð í Fisketorvet í smá verslunarferð en hitt og þetta vantaði á heimilið. Seinniparturinn var svo mun skemmtilegri hjólaferð en þá ákváðum við að prófa Paradis-is sem ég hafði aðeins heyrt af. Ágætis ís það. Sáum þar að það var loppemarket rétt hjá svo við röltum þangað en það var frekar lítið og sveitt og minnti mig bara á auglýsingarnar á barnalandi. Létum okkur því hverfa þaðan frekar fljótt og komum aftur á Íslandsbryggjuna þar sem við röltum um í góða veðrinu. Sáum menn á kajökum í fótbolta og settumst aðeins og horfðum á þá og komum svo við á smá leikvelli. Siggi fór svo heim að elda en við Halla Rakel tókum hjólið hennar út ásamt háfnum og fórum að veiða sílí og í hjólaferð. Þegar við vorum á leið heim aftur sáum við Selmu sem er stelpa á leikskólanum hennar Höllu Rakelar. HRL sá strax að þetta var stelpa á leikskólanum og ég bauð henni að leika aðeins við hana en hún var frekar feimin þrátt fyrir að hana langaði það mjög mikið. Við stoppuðum smá stund og fórum svo heim. Við vorum varla komnar inn þegar það fór að hellirigna og þá meina ég hellirigna. Regndroparnir bókstaflega hoppuðu á svalahandriðinu og svo komu þrumur stuttu seinna eins og tíðkast og ekkert merkilegt við það að okkur finnst. Nema að rétt í þessu lásum við Siggi svo frétt á mbl.is um að danskur fótboltamaður hefði orðið fyrir eldingu á æfingu. Við gátum nú ekki annað en litið á hvort annað og brosað. Veit að það er ekki fallegt að hlægja að óförum annarra en svona er maður nú illa innrættur.

Annað sem okkur fannst merkilegt í dag er að þegar við vorum að hjóla niður í bæ þá var Langebro uppi þ.e. það var lokað fyrir bíla- og hjólaumferð en 3 seglskip sigldu undir brúnna. Við höfum ekki lent í því áður að sjá brúnna uppi og fannst það bara nokkuð merkilegt. Veit reyndar ekki hvort þetta sé svo bara mjög tíður atburður. Höllu Rakel fannst þetta líka mjög skrítið að sjá brúnna og götuna svona upp í loftið.

Afmæli o.fl

26. ágúst 2006 klukkan 11:53
Afmælið hjá Joacim (já, hann hét víst ekki Marcus eins og ég var búin að segja) var rosalega skemmtilegt. Krakkarnir fóru með fóstrunum um kl.9.30 og komu víst  ekki til baka fyrr en 13.30. Það var stór garður og þar var bara verið að leika og fullt af veitingum sögðu fóstrurnar. Þau fengu svo öll pakka með sér heim sem þau veiddu víst einhvern vegin, veit ekki alveg hvernig það fór fram. Halla Rakel fékk lítinn hund í tösku.

Siggi er búinn að vera í skólanum fimmtudag og föstudag og líkar bara vel það sem komið er. Búin að kynnast fullt af fólki frá öllum heiminum en hann segir nú sennilega betur frá þessu. Ég nýtti því tíman í gærmorgun og hjólaði mér í góða veðrinu í Field's og kíkti smá í búðir og verslaði aðeins. Var búin að sjá um daginn rosa flotta skyrtu sem ég ætlaði að kaupa í HM úr Madonnu-línunni en var eitthvað tvístígandi þá en ætlaði svo að kaupa hana núna en þá var hún auðvitað búin. Var frekar fúl út í sjálfa mig að hafa ekki keypt hana bara en ætli maður renni ekki bara í Fisketorvet í dag og kanni málið það. Er líka að bíða eftir að skíðabuxurnar í stíl við úlpuna hennar Höllu komi í búðirnar. Fyrir þá sem eru á leiðinni til Köben þá eru vetrarvörurnar svona hægt og rólega að týnast í verslanirnar :)

Sverrir, Steffí og Hafrún Hekla komu í mat til okkar í gærkveldi og voru í rosa stuði. Hafrún Hekla er algjör partýmær og var sko ekkert á því að fara sofa heldur bara í þvílíku fjöri. Halla Rakel var hins vegar orðin frekar þreytt og sofnaði á sínu græna um kl.22. Verður gaman að geta hitt þau oftar en þau eru búin að búa hér í rúm 4 ár.

Nonni í heimsókn

24. ágúst 2006 klukkan 15:02
Það var lítið mál í morgun á leikskólanum og hún vinkaði pabba sínum í glugganum. Þetta var líka bara smá í gær þar sem hún var í góðu tómi að leira þegar Védís Agla kom á leikskólann kl.10. Á morgun eru krakkarnir svo að fara í afmæli heim til Marcusar á leikskólanum og það er dálítil spenna fyrir því. Ég veit ekki alveg hvernig því verður háttað en hún á víst ekki að koma með nesti með sér.

Nonni bróðir (aka. ísfrændinn) kom til okkar í gær og gisti í nótt. Hann var að koma frá Íslandi og hélt svo áfram leiðar sinnar til Horsens í morgun. Spurning hvernig þetta verður hjá honum þegar þangað er komið en hann gæti þurft að ganga frá lestarstöðinni þar sem það eru litlar sem engar almenningsamgöngur í dag í bænum né leigubílar vegna Madonnutónleikanna. Margar af götum bæjarins lokaðar enda er búist við því að íbúafjöldinn tvöfaldist en þetta er ekki nema 60 þús. manna bær og eru víst um 80 þús. manns á tónleikunum. Fyrir áhugasama bendi ég á www.horsens.dk. Stella og Elva ásamt spúsum eru á leiðinni á tónleikana og ég get alveg sagt að ég væri alveg til í að vera fara líka. En þegar Elva talaði um þetta var ég búin að bóka mig á Robbie í Glasgow og var ekkert að fara flytja til DK svo mér fannst það einum of mikið af því góða og sagði pass. Talandi um að hlutirnir taki u-beyju allt í einu. Nú sit ég semsagt með sárt ennið í DK og fer á hvoruga tónleikana en langar geggjað á báða.

Höfðum það náðugt hér í gær og morgun. Allt voða aflappað. Fullorðna fólkið ýmist í tölvunni, að spjalla og sötra öl á meðan HRL lék við krakkana við hliðina. Nautasteik og tilheyrandi í kvöldmat. Svona á lífið að vera. Nýja dýnan var svo vígð í fyrsta sinn af gesti og fékk bara góða dóma.

Nonni

Nýja dýnan


1, 2, 3, 4 og 5

23. ágúst 2006 klukkan 12:59
1. Það hefur verið smá bakslag hjá Höllu Rakel í leikskólanum í gær og í dag. Í gær grét hún í ca. 30 mínútur eftir að Siggi fór sögðu fóstrurnar en svo var allt í lagi. Í morgun fór Siggi líka frá henni grátandi, vona að það sé búið núna. Ég vona að þetta sé bara rétt smá enda vorum við svosem alveg undir það búin að það kæmi alltaf smá svona tímabil. Hún er í raun eins og hún var þegar Siggi var að koma heim frá USA. Þá voru þetta 2-3 dagar og svo allt í fína.

2. Fór á skrifstofurnar hjá Actavis í Gentofte í gær í smá heimsókn. Mér leist bara vel á en þau heima voru búin að hræða mig með að þetta væru bara gamlar kellur þarna en það voru nú alveg nokkrar ungar þarna inn á milli og hinar ekkert svo gamlar. Virkuðu bara nokkuð hressar líka og svo er víst alltaf föstudagskaffi eins og heima :) Veit ekki alveg hvenær ég áætla að fara fyrst þangað til að vinna en vonandi bara sem fyrst. Halla Rakel þarf að komast aðeins betur inn í leikskólann og þá verð ég að vera standby þar sem skólinn er að byrja hjá Sigga.

3. Má til með að halda áfram að dást að eldarmennskunni hjá okkur Sigga... já, okkur Sigga. Siggi er nefnilega að verða ansi liðtækur á því sviði skal ég segja ykkur og er farin að töfra fram hinar dýrindismáltíðir. Í fyrradag var hann með gráðuostafylltar kalkúnabringur og tilberhör en í gær var ég svo með heimalagaða pizzu með parmaskinku og rucola salati. Ég hef ekki geta hætt að hugsa um þessar pizzu síðan ég smakkaði hana fyrst. Mikið hrikalega var þetta allt saman gott hjá okkur.

4. Prison Break er byrjað aftur. Horfðum á fyrsta þáttinn í season 2 af Prison Break. Alveg lofar þetta góðu, verst að þurfa alltaf að bíða í viku núna eftir hverjum þætti. Danir eru frekar snöggir að þessu en þeir sýna þáttinn á sunnudaginn (semsagt viku á eftir USA) en glætan spætan við Siggi gætum beðið alltaf viku.

5. Kaus Magna í morgun. Var ekki alveg að geta það fyrst til að byrja með og sá að Þórey var online og bað hana að hjálpa mér en við gátum ekki klórað okkur fram úr þessu. Mesta furða að okkur fannst. Þá datt mér í hug barnalandið góða. Það eru svörin pottþétt og jú jú, breyta klukkunni vinan. Eftir að ég skipti á íslenska tímasónið þá poppaði upp allt önnur síða eiginlega hjá mér og ég gat kosið kauða nokkrum sinnum. Sýndist á skvísunum á barnalandi að þær væru búnar að kjósa svona ca. 200 sinnum hver. Ég var nú ekki alveg svo virk samt.

Staðsetningin

22. ágúst 2006 klukkan 00:22
sjáiði þessa mynd?

Smellið á myndina

smellið til að sjá stærra eintak. Pizzastaðurinn Nabilo bakar mjög góðar pizzur - mæli sérstaklega með þeim!

SL

Partý, Singstar, löggan, þynnka

21. ágúst 2006 klukkan 13:40

Helgin er búin að vera alveg hreint frábær. Byrjuðum laugardaginn á því að hjóla út í Bilka og fylla á bjórbirgðirnar en fjölskyldurnar 3 í PGH 7 og 9 hittust svo um kvöldið og þá var vissara að eiga nóg. Fórum svo í dýragarðinn í alveg hreint glymrandi veðri. Það var auðvitað farið í gegnum hann á hundavaði en HRL hljóp alveg á milli dýranna "skoðum önnur dýr" og svo hlaupið af stað þegar það var rétt búið að kíkja á hitt dýrið. Aparnir með rauða rassinn (veit ekki hvað týpa þeir eru) vöktu lukku enda voru þeir með litla apa. Ísbjörninn þótti líka merkilegur enda var hann að snæða sér á hvorki meira né minna en heilum hestshaus. Hann lék sér að kasta hausnum til og frá og stökkva svo á eftir honum, frekar geðslegt að segja við barnið að hann væri að éta hest. Halla Rakel fór svo á hestbak á ponyhesti og svo var farið að leika og þar hittum við fjölskyldurnar á PGH 7 líka.

smekklegt

Eftir dýragarðinn hittumst við svo öll heima hjá S&S og borðuðum saman. Það var mikið fjör hjá krökkunum og spennan þvílík þegar þau áttu að fara sofa öll saman. Það gekk ekki betur en svo að HRL gat engan vegið sofnað og á endanum fór Siggi með hana hingað yfir og hún sofnaði 23.30 og var svo bara borin yfir aftur í partýið. Fullorðna fólkið skellti sér svo í nýja SingStar leikinn, þvílíkt skemmtilegur og frábær lög á honum. Þetta þótti hin besta skemmtun og mikið sungið, dansað og keppnin mikil á milli liða. Metnaðurinn var það mikill að nágrönnunum þótti ástæða til að kalla á lögregluna. Já, lögreglan mætti semsagt á svæðið til að sussa á þessa brjáluðu Íslendinga. Þeir voru víst búnir að reyna kalla upp og dingla og dingla án árangurs. Voru bara sprækir og sögðu áður en þeir fóru "you all have great voices" :) Takk fyrir það. Eftir þessa skemmtilegu heimsókn var nú bara slökkt á leiknum og stelpurnar fóru á "trúnó" inn á baði en strákarnir voru frammi, sumir fóru heim að sofa í frekar annarlegu ástandi en hinir í PacMan sem er nýjasta æðið hjá stóru strákunum.  Það voru vægast sagt frekar súrir foreldrar sem vöknuðu kl.7.20 með grísinum sínum á sunnudagsmorgun en þetta hafðist allt saman.

Þrjár krúttmýs

Efnilegir

Sigga, Valdi og Halldóra Valdís kom svo til okkar í gærkveldi og borðuðu með okkur. Halldóra Valdís var alveg í skýjunum að leika með allt dótið en aftur á móti voru smá svona gestastælar í heimasætunni en hún var líka alveg orðin örmagna af þreytu enda lítill svefn nóttina áður. Það eru komnar myndir inn á barnaland frá þessari stórskemmtilegu helgi.

Mini-spatúlur


Í dag er það svo bara hversdagsleikurinn - vinna, leikskóli og hlaup hjá húsbóndanum.

Nú verður bloggað...

18. ágúst 2006 klukkan 21:17
Jæja, loksins kominn í bloggstuð.

Við Reynir fórum á fótboltaæfingu með FC Íslandi sl. þriðjudag, það voru aðeins 8 manns mættir með okkur þar sem þar sem margir eru á Íslandi núna í fríi þannig að það var tekinn léttur reitabolti og svo smá spil. Æfingarnar eru kl. 18 á þriðjudögum og fimmtudögum þannig að þær skerast alveg í stundatöfluna mína í skólanum - ég verð því ekkert meira með fyrr en innanhúsboltinn byrjar í nóvember.

Fór í heimsókn í skólann og hitti þar námsráðgjafa. Hann skildi ekkert í því af hverju ég væri með svona mikið af spurningum og sagði mér bara að vera ekkert að stressa mig og mæta bara 25.ágúst og fá upplýsingarnar þá - þetta var samt nettur gaur. Skólinn er rosa flottur, þetta er mjög nýleg bygging öll í gleri og allt rosa flott og fínt - undir skólanum er......ekki bílageymsla, heldur risa hjólageymsla. Það mun eflaust koma sér vel í vetur! Ég verð í þremur fögum á haustönninni - samtals 30 einingar. Fögin eru:

Modelling and design (15 ein)
Database Systems (7.5 ein)
Object oriented programming (7.5 ein)

og stundataflan eftirfarandi:

Mánudagar : 13:30 – 18:00
Þriðjudagar: 13:30 – 21:00
Fimmtudagar: 13:30 – 18:00+

Það er gert ráð fyrir talsverðri verkefnavinnu þannig að maður verður líklega mikið í skólanum utan reglulegrar stundaskrár. Þegar maður loggar sig inn á heimasvæðið sitt er hægt að sjá hvaða nemendur eru á sömu braut og ég - það er semsagt einn annar íslendingur á nákvæmlega sömu braut og ég og svo eru 3 aðrir sem eru á svipaðri braut en við erum bara saman í einu fagi. Hvað um það, komum okkur að því mikilvæga tengdu skólanum - barinn í skólanum heitir Scrollbar.

Fengum netið loksins síðastliðinn þriðjudag - það kom hérna gaur "í gallanum" og byrjaði að rífa upp allar símadósir og fikta eitthvað í vírunum. Ekki veit ég nákvæmlega hvað hann var að gera en ég komst allavega á netið þegar hann var farinn. Vandamálið var bara það að það var ekki þráðlaust - ég reyndi að klóra mig fram úr leiðbeiningunum (sem n.b. eru á dönsku) og þar stóð að maður þurfti að hafa samband við þjónustuverið. Þar sem þetta er svokölluð "professional" tenging þá hefur maður enga stjórn á routernum sem maður er með - maður þarf að láta tæknigaurana hjá TDC sjá um allar stillingar og það kostar 30 DKK aukalega hvern mánuð að vera með þráðlausa tengingu. Ég er ennþá að reyna að skilja af hverju það kostar 30 krónur aukalega að vera með þráðlausa tengingu þegar maður er hvort sem er með þráðlausan router.

Fór í hjóla-vinnugallann á miðvikudaginn og setti bjöllu og körfu á hjólið mitt. Þegar maður er ekki með bíl þá verður maður helst að vera með körfu á hjólinu til að geta farið að versla og svona. Það gekk svona upp og ofan að setja körfuna á og leit alls ekki vel út á tímabili. Hjólið var komið í nokkuð marga parta þegar verst lét en ég þurfti að taka stýrið af til að geta fest körfuna - þegar ég svo loksins náði að rífa það af þá hrundi alls konar drasl úr rörinu. Maður þurfti aðeins að spá í því hvernig átti að púsla þessu saman aftur en það hafðist á endanum.

Var það ekki Jessica Fletcher sem var með körfu á hjólinu sínu í "Murder She Wrote"? - allavega þá er ég eins og hún þegar ég hjóla um borgina!

Fann vínbúð hérna á Íslandsbryggju sem selur mjög góð rauðvín og margar tegundir af viskíi - planið er að kaupa sér single-malt scotch þegar það er pláss á barnum.

Seldum loksins Golfinn okkar núna á miðvikudaginn þannig að nú er íbúðin eftir. Fasteignasalan Höfði er tekin við og hef ég fulla trú á því að fólkið þar klári dæmið.


Jæja er orðinn þreyttur í puttunum eftir öll þessi skrif - meira síðar! Er í fríi nánast út alla næstu viku - planið er að njóta lífsins þangað til...

2 myndir

18. ágúst 2006 klukkan 12:38
Vinkað

Vinkað bless á leikskólanum.
Krakkarnir standa upp á bekk við gluggan og vinka okkur bless á morgnanna þegar við förum heim. Halla Rakel spyr nú bara hvort ég ætli ekki að fara fara en Tómas kveðjumús er aðeins meira fyrir kveðjustundir og segir bless við mömmu sína nokkrum sinnum og einnig "þú kemur aftur, mamma". Hann er algjör mús og svo fær hún nokkra kossa líka og þeir verða að vera alveg 100%. Védís Agla er svona nokkurn vegin mitt á milli þeirra. Svo leika þau sér sæl og glöð á daginn á leikskólanum. Í morgun var Halla Rakel hlaupin strax út og kom labbandi til baka haldandi í höndina á Söru nýju fóstrunni.

svalirnar

Svalirnar góðu.
Loksins þurrt núna í nokkra daga og þá er gott að sitja á svölunum og kanna heiminn á netinu og gæða sér á hvítvíni um leið. Þar sem geitungarnir virðast vera alveg snar eftir nokkra rigningadaga þá er nauðsynlegt að vera með hársprey við hönduna til að fæla þessi helv#$#% burt. Þeir eru alveg óðir.

Halla snakkede meget

16. ágúst 2006 klukkan 20:46
Gekk vel á leikskólanum í morgun. Halla Rakel hljóp bara strax út að leika þegar við komum en svo máttu krakkarnir vera inn í dag svo hún kom aftur inn. Fóstrurnar eru voðalega yndælar svona eins og tvær ömmur eða um fimmtugt-sextugt gæti ég giskað á og við fáum orðið voða góðar móttökur hjá þeim núna. Við foreldrarnir fórum svo bara fljótlega og þegar við komum aftur kl. 13 hafði bara gengið mjög vel. Krakkarnir voru úti að leika og voru bara sallaróleg, ekkert að hlaupa til okkar heldur bara svona rétt köstuðu á okkur kveðju. Jette sem er ein fóstran sagði að Halla Rakel hefði talað mjög mikið en þær hefðu lítið skilið hvað hún væri að segja. Hún er greinilega alveg komin í gírinn hérna, vonandi að þetta haldi áfram að ganga svona vel.

Það byrjaði svo ný fóstra á leiksólanum í dag svo nú eru þær orðnar 3, hún heitra Sara og er svona frekar ung stelpa og virkaði voða almennileg. Halla Rakel er í spiseguppe með henni en þau eru öll í sitt hvorri grúppunni svo þau nái að kynnast hinum krökkunum og vonandi tala smá dönsku.

Eftir leikskólann nýttum við góða veðrið og hjóluðum smá. Það er nefnilega búið að vera þurrt í dag....... Hjóluðum í Fisketorvet og keyptum langþráða brauðrist handa Sigga og svo það sem við bíðum spennt eftir að prófa á föstudaginn - nýja SingStar leikinn SingStar Anthems. Það eru frekar góð lög á honum eins og I will survive, It's Raining Men, Radio Ga Ga og fleirir og fleiri. Kannski við Siggi náum einhverju forskoti loksins á Yngva í SingStar þar sem þessi leikur er víst ekki kominn heima :)

Halla Rakel og Siggi fóru svo áðan að veiða síli í tjörninni hérna við hliðina á hjá okkur en það var keyptur bleikur háfur í dag. Það komu víst engin síli í hann en eitthvað var af þeim þarna. Sumir litlir eru ekki með neitt rosalega mikla þolinmæði, eitthvað sem hún sækir til beggja foreldra sinna. Núna er HRL á PGH 7 að leika við Védísi Öglu og Tómas og Siggi að undirbúa matinn. Á meðan sit ég og sötra bjór. Mjög þægilegt lífið í Köben.

Veiðimaður

Leikskólastelpa

15. ágúst 2006 klukkan 23:38
Fyrsti leikskóladagurinn hjá Höllu Rakel var í gær. Áttum í raun og voru að byrja í dag en þar sem Tómas og Védís Agla áttu að byrja í gær tróðum við okkur eiginlega bara með þeim líka. Þau voru þvílíkt spennt þegar við lögðum af stað. Þegar við komum á leikskólann voru hlutirnir aðeins öðruvísi en við erum vön frá Íslandi. Okkur var rétt heilsað og svo ekki meir. Sáum að krakkarnir voru að klæða sig í útifötin svo Reynir pabbi Védísar Öglu spurði hvort þau væru að fara út og því var játað þannig að við klæddum krakkana í regnfötin og fórum út. Þar sátum við að mestu afskiptalaus í ca 2 og hálfa tíma eða þar til við sáum að krakkarnir væru að fara inn að borða. Krakkarnir voru voða duglegir að leika sér en fóru samt ekki langt frá okkur foreldrunum. Þau borðuðu svo hádegismat á leikskólanum og var Halla Rakel svona nokkurs konar umsjónarmaður. Það er þannig að börnin taka matinn úr nestisboxunum sínum og setja á diska og svo safnar einn saman öllum nestisboxunum og setur á borð við hliðiná og það gerði HRL. Hún borðaði mjög vel og svo eftir matinn fórum við heim.

Leikskóli

Í morgun var hún mjög spennt að fara aftur og nú skildum við þau eftir í smá stund. Þau byrjuðu á því að fara út og við vorum með þeim í ca. klukkutíma. Ég var búin að láta HRL vita að nú ætti hún að vera ein í smá tíma. Hún kom til mín eftir smá tíma úti og spurði hvort ég ætlaði ekki að fara núna. Við fórum svo stuttu seinna og ég var bara kysst bless og svo haldið áfram að leika. Við náðum í þau eftir hádegismatinn og þá vildi hún bara ekkert að ég kæmi strax en kom nú samt heim með mér.  Á morgun eiga þau svo að vera lengur ein eða frá ca. 9 til 13.

Var að setja fleiri myndir inn á www.hallarakel.barnaland.is.

Vildarpunktar og body count

14. ágúst 2006 klukkan 15:15

Það var svo á endanum pabbi sem var fyrstur til að hringja í gemsann - hann fær því 10.000 vildarpunkta í PHG punktakerfinu að launum. Punktana er hægt að nota til að fá fríar nætur á PHG 9 ásamt mörgu öðru.

Í síðustu viku voru 5 geitungar drepnir og ég er enn að þróa bestu og hreinustu aðferðina við drápin. Arna notast enn við hárspreyið en það festist bara svo illa í húsgögnunum þannig að það gengur ekki til lengdar. Siggi Stefáns., Reynir og ég ætlum að reyna að finna svona fluguspaða sem veita rafstuð við höggið þannig að flugurnar deyja á stundinni - sjáum til hvernig það fer. Hingað til hafa auglýsingabæklingarnir verið áhrifaríkastir en þeir eru stundum svo þykkir að auðvelt er að vefja þá upp og veita blessuðum geitungunum náðarhöggið.

Geitunga body-count : 5

Okkur fjölgar!

13. ágúst 2006 klukkan 01:13

Í dag eru samtals 6,534,244,317 mannskepnur hér á jörðinni! Ef okkur fjölgar á sama hraða næstu 44 árin þá verðum við rúmir 9 milljarðar árið 2050.

af því eru við Íslendingar rúm 304.000 stk. Það eru því a.m.k. nokkur ár þangað við getum tekið yfir heiminn, við verðum bara að vera þolinmóð. Við verðum samt að setja meiri pressu á breiðhyltingana og Spatúlurnar þó þau hafi verið mjög iðinn við þetta síðustu misseri - betur má ef duga skal.

massa mörg

Fylgist  með mannfjölguninni á: http://www.census.gov/main/www/popclock.html

Þessi fróðleiksmoli var í boði Harboe Ren Pilsner sem, enn og aftur, er alveg suddagóður.

SL

Þú veist það er árið 2006 ef...

13. ágúst 2006 klukkan 01:02
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt...

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að  því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta  bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.


Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

En, ef þú bíður of lengi, mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama um svona lista ... En vinir þínir munu missa af frábæri skemmtun.

Netkerfið "The Longs" og heimabíóið

13. ágúst 2006 klukkan 00:56
Fór í gallann í dag þegar Arna fór í Fisketorvet og setti upp netkerfið hérna á heimilinu. Þar sem við erum ekki með sérstakt tölvuherbergi í þessari íbúð þá er meirihlutinn af tölvudótinu inni í geymslu sem virkar núna svona eins og serverherbergi í litlu fyrirtæki Glottandi.

Þar er heimilistölvan með öllu sínu geymsluplássi, skanninn, flakkarinn, tölvuskjár og nýi laserprentarinn - einnig er örbylgjuofnin við hliðina á prentaranum en hann er því miður ekki nettengdur. Planið er að hafa þráðlausa routerinn í stofunni og tengja heimilistölvuna (serverinn) við með þráðlausri tengingu.

Danir eru frekar rólegir í tíðinni eins og margir vita og það hefur tekið alls 6 vikur fyrir okkur að fá nettenginguna því Arna sótti um hana þegar hún kom hingað á Robbie Wiilliams tónleikana. Það kemur semsagt tæknimaður með routerinn á þriðjudaginn og þá verður netkerfið gangsett endanlega - þá geta loksins Stella og Siggi fengið frið á sínu neti því við höfum verið að nota það hingað til. Ég kann þeim miklar þakkir fyrir lánið!

Þar sem maður var kominn í stuð þá tengdi ég líka heimabíóið og loftnetið þannig að nú er hægt að horfa á tæplega 40 danskar, sænskar, norskar og þýskar stöðvar í stofunni. Til að testa heimabíóið þá var Terminator II skellt í DVD spilarann og hækkað vel...

Á mánudaginn á ég viðtal með námsráðgjafa í ITU til að fara yfir námið og hvaða fög ég ætla að velja ofan á þau sem ég verð að taka (Database systems, Modelling and design og object oriented programming). Þegar því er lokið þá ætti ég að geta fengið að vita nokkurn veginn hvernig stundataflan mín verður en hvernig sem valfögin verða þá eru þriðjudagarnir langir (13:00 - 21:00) Þögull sem gröfin

Verðum í bandi.
SL

Íslenskt veður

13. ágúst 2006 klukkan 00:27
Veðrið í dag var langt frá því að vera skemmtilegt. Hver sendi íslenska veðrið hingað til okkar? Rigning og rok......
Seinnipartinn rættist nú reyndar aðeins úr þessu og sólin lét sjá sig í smá stund og það hlýnaði eitthvað. Allavega þannig að þessi færsla er skrifuð á svölunum.

Þrátt fyrir leiðinlegt veður lét ég mig hafa það og hjólaði í Fiskitorvet í leit að snúrulistum og á meðan setti húsbóndinn upp netkerfið "The longs". Nú er bara að bíða eftir netinu sem kemur á þriðjudaginn og þá er allt klappað og klárt.

Gubbupest

12. ágúst 2006 klukkan 14:13

Nú höfum við fengið miður skemmtilegan gest í heimsókn. Gubbupestin hefur bankaðu upp á hjá Höllu Rakel. Þetta er eiginlega í fyrsta skipti sem hún fær hana síðan hún varð svona "stór". Fljótlega eftir að hún vaknaði byrjaði hún að kvarta undan í maganum og við Siggi héldum að þetta væri kannski bara garnagaul og hún því svöng. En eftir að hún borðaði hélt þetta áfram og svo allt í einu kom það. Hún hefur reyndar ekki gubbað mikið en er mikið illt í maganum. Við lögðum okkur svo saman og hún sofnaði alveg í um klukkutíma og þegar það gerist þá veit maður að hún er lasin. Nú liggur hún upp í sófa með sængina sína og horfir á Línu ógurlega rækjuleg greyið.

UPDATE
Þetta hefur verið eitthvað tilfallandi því sú stutta er búin að vera mjög spræk í dag og lystin í fínu lagi.

Vinnugallinn

12. ágúst 2006 klukkan 00:26
Gleymdi að segja frá því að þegar Halla Rakel var búin að leika sér í Capella Play um daginn var hún alveg rosalega þyrst enda búin að hoppa og skoppa í dálítinn tíma. Við vorum bara með appelsín og gaf Siggi henni það að drekka og henni fannst frekar gott. Þegar ég kom svo hljóp hún til mín og sýndi mér það og sagði "þetta er rosa gott. Þetta er með svona baunum í og það kemur upp í nefið".

Í gær og í dag höfum við Siggi verið í vinnugallanum. Veðrið hefur verið svona lala svo það var ágætt. Fórum í gær í Ikeaferð og versluðum svona síðustu hlutina svo hægt væri að gera heimilislegra. Keyptum kommóðu inn í svefnherbergi, gardínur, púða í sófann, skógrind og eitthvað fleira. Um leið og við komum heim var hafist handa við að græja og gera. Sigga var settur í vinnugallann og borvél fengin lánuð hjá Reyni hér við hliðaná til að festa upp gardínurnar. Núna er Siggi eins og óður maður með borvélina og þetta er víst heitasta afmælisgjöfin. Stebbi og Jóhannes eru örugglega frekar fegnir enda litlar líkur á að við þurfum að hóa í þá í framtíðinni. Veggirnir hérna eru annars úr að ég held gulli eða eitthvað. Það er allavega vibbi að bora í þá, þetta er svo þétt og fast. Jæja, gardínurnar voru allavega styttar, straujaðar og festar upp, kommóðan sett saman og svona dútl. Í morgun var svo haldið áfram og allt gert "spikk and span". Siggi jú með borvélina á lofti aftur í dag og við festum upp hillur, spegil og ljós í forstofuna. Maðurinn bara í essinu sínu með vélina. Nú eru allir kassarnir sem eftir voru bara inni í geymslu og engir kassar hérna frammi. Æðislegt, ég var að verða vitlaus á kössum í hverju horni.

Halla Rakel spáir núna stundum í það hvernig er að vera gamall og hvenær hún verði gömul .Einhvern vegin er það hennar skilningur að þegar maður verður gamall og deyr þá fara beinin úr manni. Hún var áðan að segja að hún væri  búin að lifa stutt og hún væri ekki orðin gömul því hún væri enn með beinin. Hún kom svo til mín og saug inn kinnarnar og sagði að svona yrði maður þegar maður væri gamall.

GSM númer SL

11. ágúst 2006 klukkan 02:23
Nýtt GSM númer hjá mér er:  (+ 45) 2992-6916

Sá fyrsti sem hringir fær 10.000 vildarpunkta í PHG punktakerfinu Gráðugur

SL

Lalli (undirlongari) 29 ára í dag!

11. ágúst 2006 klukkan 02:20
Til hamingju!

Lalli 29 ára í dag

kveðja,
Siggi (yfirlongari), Arna og Halla Rakel

Bankareikningur í höfn og hjólakerran vígð

09. ágúst 2006 klukkan 23:44
Lögðum af stað í morgun í bankann og vorum komin rétt eftir opnum. Stofnuðum bankareikning og fengum netbanka. Fáum svo debetkortin okkar send í pósti og þá eru okkur allir vegir færir í búðunum. Núna erum við mikið háð því að taka út pening í hraðbönkum þar sem svona “lókal” búðir taka bara dankort eða “kass”.  

Síðan var hjólakerran vígð almennilega. Hjóluðum ásamt familiíunni á PGH 7 út í Bilka í gardínuleiðangur. Það fór mjög vel um HRL í nýju kerrunni og hún sofnaði meira að segja á bakaleiðinni. Gardínuleiðangurinn gekk svona upp og ofan. Sáum að það var hægt að kaupa gardínur þarna en okkur fannst þær heldur dýrar svo við ætlum að skoða málin betur. Börnin fóru svo með feðrunum í leikland í Fields sem heitir Capella play á meðan mæðurnar kíktu aðeins í búðir. 
 

Halla Rakel og Tómas geta nú verið svakalegar rúsínum hérna á svölunum. Kallandi á hvort annað og rétt fyrir matinn í dag var hún alveg stöðugt að kalla á hann. Drengurinn fékk bara ekki frið Tómas, Tómas, Tómas, Tómas.  Læt hér fylgja með brot úr samtali þeirra hér á svölunum.
 

Tómas
af hverju varstu að gráta?
 
Löng þögn...
 
Halla Rakelstundum.... þegar maður meiðir sig eða ef maður vill ekki fara heim þá grætur maður.
 
Stuttu seinna.
 
Halla Rakelmáttu vaka lengur? Spurðu mömmu þína og pabba hvort þú megir vaka lengur.
 

Svo kom hún stuttu seinna inn og spurði hvort hún mætti gefa Tómasi eitthvað að borða. Það er aðalsportið núna að millifæra mat á svölunum. Tómas gefur Höllu Rakel kjötbollur og í dag fékk hún peru. Halla Rakel hefur verið að læða í Tómas melónum og bönunum.
 Núna rétt í þessu sagði Halla Rakel “Nei, tölum dönsku” og svo “únskúld”. Það er hreinlega allt rætt hér á svölunum.  Svo bað hún pabba sinn um vatn “viltu gefa mér vatn, elsku englabossinn minn”. Gullkornin alveg fljúga út úr henni.
 
  

Børnehave og legeplads

09. ágúst 2006 klukkan 01:53
Aðeins skemmtilegri dagur í dag hjá HRL heldur enn aðrir dagar. Fórum eftir hádegið í Bryggehuset í heimsókn. Halla Rakel var mjög spennt að heimsækja leikskólann sinn og allir virtust mjög almennilegir þarna. HRL var ekki lengi að spotta sundlaugina eða pottinn og vildi helst fá að fara ofaní. Það voru kútar og svo er alltaf einhver sem fylgist með þeim á meðan einhver er ofan í. Gæti trúað að mín dama ætti eftir að vera mikið þar. HRL var þó frekar var um sig og vildi ekki mikið yfirgefa okkur foreldrana en fannst allt þó frekar spennó. Við fáum svo að koma næsta mánudag í leikskólann sem er sami dagur og Tómas og Védís Agla byrja en ég má þó ekki fara. Held að það komi þó lítið að sök þar sem mér finnst harla ólíklegt að það myndi koma til greina. Hún hefur nefnilega verið aðeins passasöm eftir heimsóknina og verið að tala um að ég megi ekki skilja hana eftir. Þetta verður bara eftir hennar höfði og við stressum okkur ekkert á þessu. Þau hafa þó stuðning af hvert öðru og það verður gott.

Á meðan Siggi var í hjólakerruleiðangri (ég er ekki alveg hlynnt bjórkerrunafninuUllandi) fórum við HRL í smá göngutúr og römbuðum á legeplads. Þar var smá sundlaug með vatni sem Höllu fannst frekar spennadi, þríhjól og skóflur og fötur í sandkassanum. Eftir að hafa prófað flest allt var hún alveg æst í að prófa sundlaugina. Svo hún fékk að fara á nærbuxurnar og busla og fílaði það alveg. Það voru nokkrir danskir krakkar þarna líka og þegar við vorum að fara heim bullaði hún heil ósköp á einhverju bullmáli sem ég held að hafi átt að vera danska. Henni finnst það ógurlegt sport að tala svona útlensku.

Förum svo að hlaða inn myndum fljótlega, erum að bíða eftir photoshop en tölvusnillin er að vinna í þeim málum og þá vonandi dælast inn myndir hér eða á barnaland.

Venlig hilsen....

Bjór- og barnakerran

08. ágúst 2006 klukkan 22:17

Samkvæmt ráðum frá undirlongaranum (laruslong@gmail.com) skráði ég mig sem notanda á www.dba.dk (sem er markaðstorg fyrir notaða hluti m.a.) og gerði tilboð í nokkrar bjórkerrur af tegundinni Winther Dolphin. Þetta eru víst bestu hjólakerrurnar á markaðnum og kosta um 5.500 DKK nýjar.

Seinna tilboðið sem ég gerði, 3.100 DKK, var slegið fast og ég fór að sækja kerruna í dag upp í Greve sem er ca. 25 mínútna lestarferð frá Hovebanegarden. Þar var gamall afi sem tók á móti mér og sýndi mér gripinn sem er bara frekar vel með farinn m.v. að kerran sé 2.5 ára gömul.  Hann sagði mér að ég hefði verið helvíti grófur á prúttinu en líkaði hversu stuttan tíma þetta tók og því sló hann til (sem betur fer).

Kerran góða!

Kerran var vígð rétt í þessu þegar ég fór í Nettó að kaupa kassa af Harboe og svo fær Halla Rakel að prófa strax í fyrramálið þegar við tengjum hana við hjólið mitt. Á morgun ætlum við í banka (Nordea) að opna bankareikning og fá Dankort. Maður þarf víst að pressa mikið á Danina til að fá Dankort en maður hlekkjar sig bara við afgreiðsluborðið þangað til þeir gefa eftir Svalur. Svo ætlum við líka að fá okkur heimilistryggingu sem maður verður víst að hafa með öll þessi hjól - við erum búin að kaupa okkur tryggingavæna lása þar sem við skráum raðnúmerin á hjólinum hjá tryggingunum þannig að ekkert mál verði að fá þau bætt ef þeim verður stolið.

Þegar þetta blogg var skrifað var einum Harboe Guld slátrað - skál fyrir því!

SL

Heissmundur 29 ára!

08. ágúst 2006 klukkan 13:23
Til hamingju með afmælið Heissi og með nafnið á litla gaurnum (Arnar Gauti)

The Heissmunds

kveðjur frá Köben - Siggi & Arna og Halla Rakel

SL

ITU

08. ágúst 2006 klukkan 12:17
Hjóluðum í gær að kíkja á skólann hans Sigga. Vorum 7 mínútur lengri leiðina og svo rétt um 5 mínútur styttri leiðina. Skólinn er rosa flottur allur úr gleri og frekar stór.

Við sátum svo út á svölum í gærkveldi og heyrðum allt í einu kallað "Siggi" úr annarri átt en af svölunum hjá Stellu og Sigga. Urðum frekar hissa og litum hvort á annað og svo niður og sáum þar Siggu og Valda. Þau komu í gær til Köben og viltust aðeins og ákváðu þá að leita okkur uppi. Þau rétt kíktu við en Halldóra Valldís steinsvaf en við ákváðum að hittast þegar þau koma til baka úr ferðinni sinni en þau eru að fara til Jótlands í rúma viku.

Bryggehuset

07. ágúst 2006 klukkan 16:58
Það er nýji leikskólinn hennar Höllu Rakelar. Fórum í morgun og náðum í kenntiölurnar okkar og svo þaðan að sækja um leikskólann. Hún fékk strax inn og má byrja í næstu viku. Við erum rosa ánægð með það því þá byrja Tómas og Védís Agla byrja einmitt þá líka. Ætlum að skella okkur í heimsókn í leikskólann á morgun og spjalla við fóstrurnar um það hvernig þetta verður.

Gærdagurinn var svakalega fínn. Fórum í siglingu út frá Nyhavn með Sindra, Berta, Stellu, Sigga, Valdimari og Tómasi og svo hjóluðum við í Tívolíið fjölskyldan og lofuðum HRL að fara í eitt tæki því það var búið að lofa því. HRL og Siggi fóru í svona litlar flugvélar og fannst Höllu Rakel það rosalega gaman. Það var mjög heitt í gær og því var nánast óbærilegt að vera mikið í miðbænum - við fórum því fljótlega heim og hjóluðum fram hjá öllu fólkinu sem var í sólbaði á Íslandsbryggju, það var alveg stappað.

Áðan fórum við svo að kaupa okkur stóla á svalirnar og vorum að fá þá rétt í þessu þannig að svalirnar eru alveg að verða tilbúnar. Siggi er kominn með GSM númer í Danmörku og hann fær vonandi SIM kortið á morgun - nýja númerið er (0045) 2992-6916 Hlæjandi

Halla Rakel í Kaupmannahöfn

05. ágúst 2006 klukkan 20:06

Halla Rakel er alveg að fíla sig hérna. Dagarnir hafa reyndar ekki verið skemmtilegir enda einkennst af búðarferðum og öðrum reddingum en hún hefur verið mjög still og góð. Tómas er orðinn besti vinur hennar og hún er allan daginn að biðja um að fara yfir til hans eða hvort hann megi koma yfir til sín. Núna eru þau hér að leika og fengu popp og bland (eplasafa og sódavatn). Annan daginn okkar hér voru þau að leika ásamt Védís Öglu en hún á heima á móti Tómasi og er jafngömul honum. Tómast gafst svo upp á skvísunum enda mátti hann ekki leika með stelpudótið. Ég tók þær í smá tiltal og allt í góðu núna. Aðalsprotið hjá þeim var nú samt að flakka á milli íbúða og máttu foreldrarnir hlaupa upp og niður með börnin.

Halla Rakel átti ágætt gullkorn í hjólatúrnum um daginn en þá ætluðu Tómas, Valdimar og Siggi jafnvel að fara í fótbolta. Þá heyrist í HRL að hún þurfi þá að fara heim og í Everton búninginn sinn áður.

 

Fyrstu merki um heimili

05. ágúst 2006 klukkan 19:35
Nú má segja að hér megi finna fyrstu merki um heimili. Við Stella fórum í Ikea í gær og náðum að versla bara alveg helling fyrir heimilið. Ég keypti skenk, rúm fyrir HRL og sjónvarpsskáp. Gærdagurinn og kvöldið fór því í að setja saman og tengja sjónvarp. Við Siggi erum frekar aum í fótum og höndum og svo Siggi í rassinum eftir hjólatúr í gær með Sigga og Tómasi á meðan konurnar voru í búðarferð. Ég byrjaði á því í morgun að raða inn í skenkinn og taka til og nú er bara nokkuð fínt hjá okkur. Enn nokkrir kassar hér og þar en þetta er allt í vinnslu.

Fjölskyldurnar tvær á PHG 7 og 9 fóru svo hjólandi í Bilka í morgun enda von á heimsókn frá Íslandi. Sindri og Berti eru væntanlegir í mat til okkar. Við ætlum að borða heima hjá Stellu og Sigga enda aðeins heimilislegra hjá þeim. Verður mjög sennilega fjör hjá okkur.

Dagur 2 (bjórinn, hjólið og stígvélaði kötturinn)

04. ágúst 2006 klukkan 01:46
kæri lesandi,
ef þú vilt bara lesa um bjór  - haltu þá áfram að lesa annars færðu þig niður í 3ju málsgrein...



Maður er nú búinn að heyra ýmislegt um bjórinn hérna í Köben en ég er aðeins búinn að skoða þetta síðustu daga hérna úti á Íslandsbryggju (eða islandsbrögge eins og locallinn segir). Ef maður ætlar að fá sér ódýran Tuborg eða Carlsberg (ca. 2.7 DKK stk.) þá þarf maður að skella sér í Bilka sem er í Fields mollinu nálægt flugvellinum (15 mínútur í strætó og lest)  eða Fötex sem er hérna hinumegin við síkið - ca. 15 (mínútur hjóla) - annars kostar hann alveg 4.7 DKK stk.  sem er nú kannski ekki mikið í augum okkar íslendinga en samt sem áður meira en maður þarf að borga. Hinsvegar í Nettó, búð sem er í 2ja mínútna labbi frá PHG 9, er hægt að fá bjór nokkurn sem nefnist Harboe og er bara fantagóður (ekki það að mér þyki Fanta gott, en hann er samt asskoti góður). Stykkið af honum kostar ekki nema 1.7 DKK sem er bara mjög gott fyrir verðandi námsmann eins og mig. Maður þarf því ekki að taka fram VIP bjórinn (Tuborg / Carlsberg) nema það komi næturgestir með VIP kort*.

Annars eru síðustu tveir dagar búnir að vera bara mjög góðir þó við séum búin að vera á fullu að koma okkur fyrir í íbúðinni og maður er bara kominn með smá tan eftir 2 sólardaga. Það er ennþá mikið eftir og þá sérstaklega af smáhlutum eins og gardýnum, ljósum o.s.frv. - við ætlum að græja þetta smátt og smátt en íbúðin verður heimilislegri með hverjum deginum sem líður. Við keyptum hjól handa Örnu í dag í Bilka sem er ekkert smá flott, það liggur við að maður sé pínu abbó - ég druslaðist með kassann heim með metró og strætó og það var ágætis líkamsrækt. Við settum það svo saman hér heima og Arna tók smá rúnt í kringum húsin hérna á meðan ég og Halla Rakel fylgdumst með, hún var alveg að lúkka.

Hjólið hennar Örnu (hvítt)=

*það er hægt að skrá sig fyrir Poul Hartlings Gade 9 VIP korti á heimasíðunni með því að senda póst á siggilong@gmail.com - það þarf 4 nætur til að að ná Silfrinu, 10 nætur til að ná Gulli og 20 nætur í Demantinn.

Með Gullinu fylgir aðgangur að Tuborg/Carlsberg bjórbirgðum PHG 9. Maður safnar punktum 25% hraðar með því að ná Gold VIP stöðu.

Með Demantinum fylgir allt sem Gullið er með + aðgangur að Poul Hartlings netkerfinu, ótakmörkuð notkun á Xbox og Playstation 2 og frír morgunmatur. Einnig safnar maður punktum helmingin hraðar með því að ná Diamond VIP stöðu.

Að sjálfsögðu er miðað við að menn borgi fullt hótelgjald eftir 2 nætur (ca. 1.500 DKK m.v.v. 5 stjörnu hótel). Svalur

Bið að heilsa heim í rigninguna
SL

Nú verða sagðar fréttir

03. ágúst 2006 klukkan 02:21
Var búin að skrifa rosa færslu í morgun en þegar ég ýtti á vista, datt "stolna" netið út og allt fór. Siggi var ekki lengi að spyrja hvort ég hefði ekki ýtt á copy áður en auðvtað ekki. Nú erum við komin á netið hjá Stellu og Sigga. Stelum hjá þeim þar til við fáum okkar en það á að vera um miðjan mánuðinn. Það má segja að það hafi verið með fyrstu verkum Sigga að koma netinu í lag hjá þeim....

Allavega, byrjum á byrjuninni. Allir voru ræstir af stað í gærmorgun kl.4 og haldið út á flugvöll. Þar tóku þvílíkt langar raðir á móti okkur og brottfararsalurinn bókstaflega fullur af fólki, hvorugt okkar hefur séð annað eins. Flugið gekk eins og í sögu og spennan mikil í leigubílnum á leiðinni heim. Halla Rakel og Siggi að koma hingað í fyrsta skipti og leist þeim rosalega vel á. Eftir að hafa kíkt á húsakynni, kíktum við yfir til Stellu og strákanna en héldum svo í búðarferð. Bjór, rauðvín, matur og aðrar nauðsynjavörur rötuðu í körfuna svo allir voru sælir og glaðir þegar komið var heim. Gerðum örstutta verðkönnun á bjórnum og niðurstaðan var Harboe í Netto sem er bara á næsta horni hjá okkur - fínn námsmanabjór þar. Siggi kemur kannski með smá fróðleiksmola um bjór hér í DK enda verður það hans hlutverk hér að sjá um bjórbirgðirnar. Það sem eftir var af deginum fór í fyrstu tilraunir að reyna koma sér fyrir og var dagsverkið í gær bara nokkuð gott.  Halla Rakel er ótrúlega sátt við lífið hér, allavega enn sem komið er. Í gær var hún sæl og glöð í dótinu sínu inn í herbergi. Það voru bara jólin hjá henni og ómaði söngur allan daginn. Hún reyndar lenti í smá útistöðum við geitung. Ég heyri að hún segir að það sé fluga í herberginu hjá sér og hélt ég að það væri bara lítil fluga. Sé hana svo ná sér í bók og smassa fluguna í glugganum í fyrstu tilraun og svo örstuttu seinna heyrist skarðræðis öskur. Þá var þetta víst geitungur sem hafði bara vankast við höggið og þegar hún ætlaði eitthvað að fikta í honum stakk hann hana í puttann. Ég vissi ekkert hvert ég átti að snúa mér og mundi ekkert hvort svona bit væru eitthvað til að hafa áhyggjur af og hringdi því bara heim í mömmu sem reddaði málunum með því að hringja á heilsugæsluna, Halla Rakel vildi nú bara að amma kæmi til sín. Nú er allt í lagi. Í dag sagði hún svo við mig að geitungurinn hefði verið óþekkur og ég spyr af hverju. Jú, hann hlýddi ekki mömmu sinni og pabba sem sögðu að það væri bannað að bíta og beit hana samt.

Í dag var svo farið í það að skrá sig inn í landið og eigum við að fá kennitölurnar eftir ca. viku og þá getum við sótt um símanúmer fyrir Sigga og svo leikskóla fyrir HRL . Þangað til er Siggi með mitt gamla íslenska númer (6990803) en danska númerið mitt komið í gagnið. Ikea var næst á dagská. Úff.. fjöldinn í búðinni og ekki allt til sem við ætluðum að kaupa. Það hafðist þó eftir smá tíma að kaupa borðstofuborð, sófaborð, svalaborð og lampa. Nú er orðið smá heimilislegt hérna hjá okkur. Á morgun á svo að kaupa hjól handa frúnni og aðra smáhluti fyrir heimilið s.s. slá fyrir stutuna en það bunaði bara út á gólf í morgun.

Bæði í gær og í dag hefur verið eldað á heimilinu og húsfreyjan frekar stolt af því. Ekkert skyndibitarugl hér á bæ. Voru reyndar bara pylsur fyrir hjónin á svölunum í gær en prinsessan svaf vært á meðan. Í dag var svo eldað almennilega, kjúklingabringur og salat, lagt á nýja borðið og haft huggulegt.  

Erum að hlaða inn myndum og setjum fljótlega annað hvort hér eða á barnaland.