Viđ

Auglýsing

Flokkar

Leit

Stuđningsmađur #94

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Lýsi

30. október 2007 klukkan 09:45
Ég datt niður á íslenskt lýsi hér í Rema1000 og ákvað að kaupa eina flösku þar sem Höllu Rakel þótti þetta alveg svakalega gott og tók lýsi á hverjum degi áður en við fluttum út. Hinsvegar eftir meira en árspásu í lýsistöku finnst henni þetta ekkert sérlega gott ennþá. Hryllingurinn byrjaði bara þegar ég sagði henni frá flöskunni og þegar hún tók fyrsta sopann fékk hún vægan hroll. Lýsið hefur nú aðeins vanist síðan þá og eru þau Siggi alveg svakalega dugleg að taka lýsi og vítamín hér á hverjum morgni og er eplasafinn ekki langt undan til að skola niður lýsisbragðinu. Í morgun gerði Halla Rakel hins vegar samning við pabba sinn, að hún fengi að skola niður lýsinu með kókómalti - ekkert mál og kókomaltið var tilbúið þegar lýsistíminn hófst. Eins og flestir kannski ímynda sér er þetta ekki góð samsetning og Halla Rakel var ekki lengi að komast að því. Hún kyngdi lýsinu og tók svo sopa af kókómaltinu og þá kom hrollurinn og sopinn endaði í vaskinum. Hún var ekki lengi að kenna pabba sínum um þessa arfaslöku hugmynd sem þó var hennar, "þú áttir ekki að láta mig drekka kókómalt" og sitthvað í þeim dúr jós hún yfir Sigga á meðan foreldrarnir skellihlógu. Ég reikna ekki með að hún biðji um þetta aftur.

Engin lognmolla hér

28. október 2007 klukkan 20:24
Þessi helgi flaug áfram á ljóshraða enda nóg að gera og blíðskaparhaustveður í Dene. Ég byrjaði loksins á jólagjafakaupum á föstudagskvöldið en það var opið til miðnættis í Fields svo við Valdís skelltum okkur í Hrekkjarvökuverslun. Náði að versla nokkrar gjafir svo það er gott að vera byrjaður. Ég var eins og stormsveipur hérna á laugardaginn og þreif allt hátt og lágt, alveg komin tími til að taka til hendinni en ég er búin að vera í letistuði síðan við komum heim frá Egyptalandi. Held mér hafi tekist að rífa mig upp úr því. Á meðan léku Halla Rakel og Védís sér saman ýmist þar, hér eða úti og um kvöldið kom Lísa ásamt foreldrum sínum þeim Selmu og Óla í mat til okkar. Þær hafa nú ekki hisst oft stelpurnar helst í afmælum hjá hvor annari og þær smullu svona vel saman strax á fyrstu mínútu og voru ótrúlega góðar saman. Siggi og Halla Rakel fóru svo í dag og hittu Óla og Lísu í dýragarðinum en ég hitti Selmu í búðunum, ágætis skipting þar. Og svo til að setja punktin yfir helgina þá buðum við Maju til okkar í kvöldmat og við sannfærðum hana um að hún væri búin að finna draumaíbúðina í DK (ekki það að hún var alveg með það á hreinu áður en hún kom).

Lísa og Halla Rakel

Það má svo benda á það í lokin að við græddum klukkutíma hér í DK í nótt svo nú erum við bara 1 klukkutíma á eftir Íslandi.

you my friend

26. október 2007 klukkan 09:46
Eftir útskriftarferðina til Grikklands árið 2002 höfum við oft notað setninguna "for you my friend...." í lokalgríni Spatúlanna. Nú í Egyptalandi poppaði þetta oft upp líka, ekki hjá okkur Sigga heldur heimamönnum. Þeir kölluðu okkur alltaf my friend enda áttum við orðið marga "vini" þarna. Þetta er svona eins og oft í útlöndum að ef þú borgar starfsfólkinu vel þá verða þau þínir bestu vinir.

Halla Rakel eignaðist vin strax fyrsta kvöldið í kvöldmatnum. Starfsfólkið þarna var allt alveg svakalega barngott og grínaðist mikið í börnunum. Það sem eftir var ferðarinnar spurði hún alltaf hvort við værum að fara borða þar sem vinur hennar væri. Strákarnir í ísnum voru líka skemmtilegri og alltaf til í smá djók, settu stundum ís á nefið hennar og ýmislegt fleira henni til mikillar gleði. Þetta er sennilega allt trik hjá þeim til að reyna gera gestina ánægðari því er það ekki þannig að ánægð börn = ánægðir foreldrar.

Siggi átti líka sérstaka vini, laugarstrákana. Þessir strákar afhentu handklæðin við sundlaugina og gengu svo með þau að bekkjunum sem við völdum og breiddu úr þeim. Ég verð eins og kjáni að láta dekra svona við mig svo Siggi sá um þessa hlið og spjallaði oft við þá á meðan. Þeir fengu svo auðvitað ríflegt þjórfé og voru farnir að taka frá fyrir okkur bekki á morgnanna. Hvorki rússkí né pólskí voru í því að gefa þjórfé, létu bara dekra svona við sig og sögðu svo varla takk enda fengu þau bara súperþjónustu einu sinni og svo máttu þau labba með sitt handklæði sjálf það sem eftir var ;)

Óvæntasti vinurinn var sá sem þreif herbergið okkar. Við skildum eftir dágott þjórfé fyrsta daginn eftir ráðleggingum sem við höfðum fengið í gegnum netið. Það varð úr að fötinum okkar var alltaf brotið saman, blóm og listir á rúmunum og svindlað á loftkælingunni þannig að það var alltaf svalt og gott að koma heim svo eitthvað sé nefnt. Ég bjóst auðvitað við að það væri kona sem tæki svona vel til, bryti saman og skreytti rúmin með blómum en nei, nei eftir tvo daga lagði ég saman 2 og 2. Þar sem það voru ekkert annað en karlmenn að vinna á hótelinu voru herbergisþernurnar auðvitað engin undantekning. Þetta eru auðvitað formdómar en mér fannst einhvern vegin mun óþægilegra að vita til þess að það væri einhver maður sem bryti saman fötin mín og skreytti rúmin fallega með blómum!!!

Blómaskreytingar

Pĺ tur

25. október 2007 klukkan 10:18
Það var hringt á dyrabjöllunni hér rétt áðan. Þegar ég svaraði heyrðist í ótrúlega glaðri stelpu "Hæ mamma". Mamman fékk hins vegar létt áfall yfir því hvað stelpan hennar væri að gera heima þegar hún á að vera í leikskólanum. Þá var hún bara "på tur" eða í göngutúr með Birthe og 4 öðrum krökkum. Ég fór út á svalir og vinkaði þeim áður en þau héldu af stað.

What's going on in the brainhouse?

23. október 2007 klukkan 10:23
Til að viðhalda tilverurétti mínum á þessu bloggi þá er ég tilneyddur til að blogga smá um daginn og veginn.

Fyrir um mánuði síðan keypti ég mér snilldargræju, Xbox360 Elite. Þetta er sko hörkugræja og það besta við hana er að hún keyrir FIFA 08 sem er besti tölvuleikur í heimi (PES á ekki breik). Ég er búinn að vera að spila aðeins á netinu við einhverja gaura sem eru  hér og þar og er núna rankaður nr. 8679 í heiminum, ekki slæmt það. Maður bara hreinlega verður að viðhalda nördinum í sér, sama hvernig.

Fifa 08

Svo stofnaði ég líka deild fyrir félagana í FIFA klúbbnum sem eiga Xbox360, Lalla og Yngva. (varúð, hrokablogg) Ég er búinn að taka þá nokkrum sinnum í bakaríið en ég vonast til að þeir fari að veita mér einhverja samkeppni fljótlega því annars verður þetta bara leiðinlegt...

Egyptaland var algjör snilld og erum við fjölskyldan alveg heltönuð öll saman. Ég var samt sem áður enn með í maganum fram á sunnudag en það er nú allt að lagst sem betur fer. Það skiptir greinilega engu máli að sótthreinsa hendurnar eftir snertingu við Egypska peningaseðla (sem eru n.b. algjör viðbjóður) og passa að drekka eða borða ekkert sem hefur komið í nánd við vatnið  þarna.

Í kvöld er ég svo að fara út að borða með gömlum vinnufélögum í Maritech - þau sakna mín svo mikið að þau stóðust greinilega ekki freistinguna. Þau eru hérna í Köben útaf Microsoft ráðstefnu um viðskiptahugbúnað í Bella Center. Á morgun er mér svo boðið í kokteilboð með Microsoft þar sem ég mun hitta haug af gömlum viðskiptavinum o.s.frv. Alltaf nóg að gerast hér í Köben og aldrei friður, Maggi G. var í mat sl. sunnudag og eftir matinn eyddum við nokkrum klukkutímum að hlusta á 90' tónlist og rifja upp gamla dansa.

Allt að komast í fastar skorður hér aftur og núna sit ég hér í ITU og er að reyna að læra XML sem gengur þokkalega en mikið fjandi er það leiðinlegt.

þar til næst...

ójú, og svo gleymdi ég að segja að Everton tapaði á heimavelli sínum - Goodison Park - fyrir erkjufjendum og hrokagikkjunum í Liverpool. Það er gott fyrir Liverp
pol að dómarinn hjálpaði þeim að vinna leikinn því þeir skíttöpuðu fyrir Everton í fyrra 3-0. Þeir þurfa sko á allri hjálp sem þeir geta fengið, gott mál. Ég styð það alltaf að hjálpa þeim bágstöddu og minni á söfnunina fyrir dómarasjóð Liverpool - liverpoolneedshelp@gmail.com 

Guldhornene og Halloween

21. október 2007 klukkan 20:23
Það er engin lognmolla hér í DK og það hefur verið nóg að gera um helgina. Föstudagskvöldið átti að taka í rólegt sjónvarpskvöld hjá mér en Siggi kíkti í partý hjá skólafélugunum en skjótt skipast veður í lofti og Elsa, Þröstur og Maja mættu í Catan spil. Siggi bættist svo í hópinn seinna og við tók maraþon Catan.

Við Halla Rakel skelltum okkur svo í bíó á laugardaginn. Vorum búin að heyra frá Andreu, Védísi og Valdísi að ný dönsk ævintýramynd um gullhornin frægu væri svakalega skemmtileg. Það reyndist alveg rétt og við skemmtum okkur báðar stórvel á myndinni.

Í dag var svo ferðinni heitið í Halloween tivoli en það var síðasti dagurinn sem það er opið. Það var stemming en alltof mikið af fólki. Hittum tvær nornir. Halla Rakel var mjög spennt fyrir þeim en stífnaði svo upp þegar við komum að þeim en hafði sig nú samt í það að spjalla aðeins við aðra þeirra. Stoppuðum nú ekki lengi í þetta skipti en röltum einn hring og Halla Rakel fékk að leika sér aðeins. Maggi Guðjóns. er svo hérna hjá okkur í mat í kvöld en hann er að koma á Microsoft ráðstefnu og Siggi viðriðin það í vikunni.

Halloween

1, 2, 3 - fullkomnunarsinni

19. október 2007 klukkan 17:50
Halla Rakel situr og er að æfa sig að skrifa. Nú er hún að skrifa tölustafina. Ég er búin að skrifa þá á blað og hún er að herma eftir. Það heyrist oft "úff, þetta verður erfitt", "þetta er ekki rétt" eða "er þetta rétt, mamma". Fimman er sérstaklega að verfjast fyrir henni, lykkjan neðst á það til að snúa vitlaust og tvisturinn var speglaður en svona er þetta þegar maður er að byrja. Fyrst var hún alveg að gefast upp, þetta átti nefnilega að vera nákvæmlega eins og hjá mér, ef ekki varð hún óþolinmóð og pirruð og strokaði allt út. Fullkomið eða sleppa því bara. Núna er þetta allt að koma hjá henni og hún er búin að á að gera þetta allt rétt - þetta er svona smá æfing í þolinmæði líka. Það er nú ekki alveg hennar sterkasta hlið.

Extra sheet

19. október 2007 klukkan 11:05
Erum komin heim í PHG og allir bara glaðir og sáttir með það. Það var auðvitað seinkun á fluginu aftur í gær svo við vorum komin seint heim. Renndum í PHG rúmlega 01.00. HRL svaf mestan partinn í vélinni og rumskaði varla þegar við þurfum að láta hana sitja í lendingunni. Heimferðin er alltaf erfiðasti parturinn í svona ferðalögum og ég er alltaf alveg svakalega fegin þegar flugvélin er lent.

Halla Rakel fór mjög spennt í leikskólan með eina mynd af sér í kafi og ætlaði að sýna þeim hana. Það er sko mikið búið að tala um Védísi, Tómas, Sofia, Alberte, Jökul Elí og Dag Ara í fríinu. Það var mikið teiknað af nágrönnunum myndir í fríinu öllum 5 saman og svo fékk hún sleikjóa sem hún getur ekki beðið eftir að sýna Jökul Elí (hann á víst mjög svipaðan) - versta er að annar gleymdist í flugvélinni svo það verður ekki sátt Halla Rakel sem fréttir það.

Halla Rakel

Best að láta söguna um sængurfötin flakka. Egyptar virðast ekki vera neitt sérstaklega góðir í ensku og er það bara frumbyggja mál sem virkar best s.s. engin flókin smá orði inn í setningarnar í daglegu tjatti. Við sáum meðal annars "house for sail" og svo var hægt að fara í "glass bout" og skoða Rauða hafið. Allavega þá var HRL í auka rúmi en það vantaði sængurföt svo Siggi biður um "extra sheet for my daughter". Um eftirmiðdaginn mætir svo maður með stól handa okkur en engin rúmföt. Við skildum ekki alveg hvað maðurinn var að gera með stól enda höfuðum við ekki beiðið um neinn stól en þegar við áttuðum okkur á misskilningnum grenjuðum við úr hlátri. HRL fékk því bara aðra sængina okkar þá nóttina og næsta dag var greitt úr misskilningum og allir sváfum með rúmföt og allir gátu setið.

Það eiga svo væntanlega eftir að koma inn molar frá Egyptalandi á næstu dögum.

Egyptaland

13. október 2007 klukkan 16:38
Það var auðvitað seinkun á fluginu okkar, eins og alltaf þegar ferðast er með Sigga. Við vorum því komin á áfangastað Hilton í Hurghada, Egyptalandi 3 klukkutímum á eftir áætlun. Fjörið byrjaði í leigubílnum þar sem bíllinn var frá ca. 1970, með engin öryggisbelti og við áttuðum okkur á því að hér eru umferðareglur ekki eitthvað sem er farið eftir. Bílstjórinn var með slökkt ljósin í niðamyrkri og engir ljósastaurar og keyrði bara þeim megin götunar sem hentaði. Síðan er bara flautað og kveikt ljósin rétt á meðan mætt er bíl svona til að láta vita af sér. Fengum góðar móttökur á hótelinu þegar við mættum, já það er gott að vera Dimond VIP. Í gær og í dag höfum við svamlað í barnalauginni en HRL hefur sennilega verið hafmeyja í fyrra lífi. Hún er ofan í lauginni frá því að við mætum á morgnanna og þar til við förum heim seinnipartinn. Þá er hún alveg búin á því og tekur smá power nap. Máltíðirnar eru sömuleiðis einfaldar hjá henni - pasta í hvert mál og mikið af því.

Hótelið er mjög fínt í alla staði, alveg afgirt og hingað komast ekki óvelkomnir. Sundlaugargarðurinn er mjög stór eins og sést á myndinni hér fyrir ofan og svo er ströndin huge og bara fyrir hótelið. Það er mikið um Rúskí og Pólskí hérna, eiginlega svakalega mikið. Við erum alltaf spurð "Where from?" af öllum sem vinna hérna og þeir verða eitt spurningarmerki þegar við segjum ICELAND. Þeir hafa sennilega ekki hugmynd um hvað það er. Það kemur sér vel þegar sölumennirnir eru að pranga inn á okkur nuddi við sundlaugarbakkann eða lokka okkur inn í búðirnar sínar. Þeir verða eiginlega svo kjaftstopp að við nágum að laumast undan.

Næ sennilega ekki að hafa þetta lengra núna þar sem tölvan er að verða batteríslaus. Eitt verð ég þó að nefna, veðurspáín hér fyrir neðan er ekki alveg að standast - heimamenn vilja nefnilega meina að það séu búnar að vera 36 og 37°C enda er frekar heitt og gott að hafast bara til ofan í lauginni. Kem svo með söguna af því þegar Siggi bað um "extra sheet for my daughter" næst.

Frí

10. október 2007 klukkan 16:00
Við erum farin í frí, komum eftir viku - veðurspáin sól og sumar.

Síðbúið sumarfrí

Shopping og fleiri afmćli

09. október 2007 klukkan 07:58
Þetta verður eitthvað stutt og laggott núna. Þessi helgi var verslunarhelgi eða allavega búðarrápshelgi. Á laugardaginn var það Strikið í geggjuðu veðri og í gær var það lagersala. Nóg að gera hjá minni. Jökull Elí og Dagur Ari mættu á svæðið á sunnudagsmorgun með mömmu sinni þar sem Elva fór með á lagersöluna en grísirnir voru eftir heima hjá Sigga og skemmtu sér vel. Gaman að hitta þá. Þessi helgi var líka afmælishelgi en Sunneva sem býr fyrir ofan okkur var með 5 ára afmæli á laugardaginn og fór HRL þangað og á sunnudaginn var Rannveig Hekla með síðbúna 1 árs afmælisveislu þar sem við fengum íslenskar SS pyslur í íslenskum brauðum. Halla Rakel er greinilega orðin meiri dani en ég gerði ráð fyrir þar sem henni fannst íslenska pylsan ekki góð en hún rann hins vegar ljúflega niður hjá mér.

Nú um síðustu helgi kom hinn langþráði FIFA 08 út og Siggi og Sverrir ekkert lítið spenntir hér á föstudeginum. Svifu um eins og litlir strákar. Lalli mætti svo á svæðið á laugardeginum í FIFA kvöld. Sú helgi fór því að mestu í sjónvarpsgláp hjá mér. Ég er mest hissa á að það sé ekki komið hingað inn "review" um leikinn frá Yfirlong. Nú þegar eru nokkur lög úr honum farin að skipa sér sess í heilanum á mér.

Annars er nokkuð tíðindalaust hér í höfuðborg Danmerkur. Allt við sama heygarðshornið en það styttist í smá frí og svo er saumaklúbbur Spatúlanna í kvöld.

HRL

5 ára skođun

03. október 2007 klukkan 15:11
Ég fór með Höllu Rakel í 5 ára skoðun og bólusetningu í morgun hjá lækninum. Hún var skoðuð bak og fyrir. Byrjað á eyrunum sem voru í toppstandi og heyrnin góð, sjónin var sömuleiðis góð, hryggurinn flottur og Halla Rakel almennt séð  bara mjög flott stelpa. Halla Rakel mældist 117 cm hjá lækninum og 21.8 kg. (mældist hjá okkur hér um daginn 114 cm og 21.7 kg).  Læknirinn sagði jafnframt að danskan hennar væri mjög góð og HRL væri með þetta allt á tæru.

Síðan var komið að sprautunni, við vorum aðeins búnar að ræða það hérna heima en ég passaði mig að fara ekkert í of nákvæmar lýsingar. Hjúkrunarkonan sprautaði hana og hún rétt kipptist til þegar hún stakk nálinni en það heyrðist ekki múkk í henni. Ótrúlega dugleg og fékk að velja sér tvo límmiða í verðlaun hjá hjúkkunni.

We wan't K!SS

03. október 2007 klukkan 11:25
Þá höfum við Siggi tekið þátt í okkar fystu mótmælum. Er ekki alveg nauðsynlegt að taka þátt í mótmælum allavega einu sinni á ævinni? Hvur veit nema að við eyðum jólunum í ár á Kárahnjúkum mótmælandi með öllum hinum vitleysingunum, hangandi í krönum og sitthvað fleira skemmtilegt. Ég verð nú að viðurkenna að ég er ekki alveg týpan í þetta (kannski ekki allir sammála þar) en það sem getur breyst þegar maður er í öðru landi. Maður breytist bara í brjálaðan mótmælanda.

Ég þurfti að draga Sigga með mér en svo þegar við vorum mætt á svæðið var hann bara farin að söngla "We wan't K!SS" með öllum hinum. Ég er svo líka búin að senda póst á alla helstu menntamenn Kaupmannahafnar í von um að skólanum verði ekki lokað. Sjáum hvað setur.

K!SS

K!SS

K!SS

Skrapp í banka.... ekki banka!

03. október 2007 klukkan 08:21

Við hjónin þurfum aðeins að skreppa í hádeginu. Verðum á Ráðhústorginu að mótmæla!


Full story later...